
Heilsu og
fitness app
fyrir þig.
Start nowLora appið
Lora er heilsu og fitness app sem gerir ræktina auðveldari og gefur þér betra utanumhald yfir árangurinn þinn.
Prógröm sem eru byggð af einkaþjálfara, leiðbeiningarmyndbönd, macro skráningar og margt fleira! Við viljum gera heilbrigðari lífsstíl auðveldari fyrir þig.
Skoða eiginleika
Hvernig getur þú byrjað?
Náðu í appið
Náðu í appið og gerðu þér aðgang á aðeins nokkrum mínútum.
Veldu prógram
Þú velur þér prógram sem passar við þín markmið eða þínar kröfur.
Sjáðu árangurinn
Fylgdu prógraminu, skráðu niður næringuna og haltu utan um árangurinn.
Skoðaðu æfingarprógrömin
Umsagnir
Alvöru umsagnir frá fyrstu notendum Lora
Guðrún Sara er yndisleg og vill svo mikið hjálpa manni að ná markmiðunum þínum. Hún hlustar á þínar óskir og peppar þig áfram sama hvað! Hún leggur sig alla fram í að gera æfingaprógrömin og myndböndin sem fylgja hverri æfingu sem er svo geggjað, appið er líka æðiiiislegt og hvetur þig mikið til þess að halda áfram🥰 mæli 100% með!
Mér finnst ég loksins vera komin með jafnvægi á matræði og hreyfingu án þess að vera að banna mér hluti eða finnast ég þurfa að hreyfa mig sex sinnum í viku. Ég fékk rútínu sem passar vel inn í lífið mitt með 3 börn og fulla vinnu og ég hef ekki fundið fyrir neinni yfirkeyrslu.
Sara hefur veitt mér svo mikinn stuðning og hjálpað mér að komast aftur af stað eftir meiðsli sem hafa tekið mikið á andlega og líkamlega. Ég er að sjá miklar framfarir í hreyfigetu og styrk. Ég var svo ánægð að hún gat byggt prógram fyrir mig því það voru svo margar æfingar sem ég gat ekki gert. En prógramið sem ég fékk frá Söru var alveg frábært!
Verðskrá
Engin binding
Greitt árlega 49.900 - 2 mánuðir fríir


