LORA

Persónuverndarstefna

Lora appið er rekið af Sarafit ehf., kt. 640124-0750

1. Almennt

Sarafit ehf. leggur mikla áherslu á persónuvernd iðkenda og gætir fyllstu varúðar við meðferð allra persónuupplýsinga. Í persónuverndarstefnu þessari kemur m.a. fram hvaða persónuupplýsinga iðkenda er aflað, með hvaða hætti, í hvaða tilgangi og hvernig þær eru varðveittar.

Iðkanda er skylt að kynna sér persónuverndarstefnu Lora. Með því að kaupa þjónustu, vöru eða skrá persónuupplýsingar hjá Lora er iðkandi að samþykkja skilmála og skilyrði persónuverndarstefnunnar.

2. Persónuverndarlöggjöf

Lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, eins og þau eru á hverjum tíma, gilda um meðferð persónuupplýsinga. Lögin taka m.a. til vinnslu, vörslu og miðlunar persónuupplýsinga.

Sarafit ehf. tryggir að meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd.

3. Ábyrgð

Sarafit ehf. ber ábyrgð á skráningu og meðferð persónuupplýsinga í starfsemi sinni. Sarafit ehf. er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem fyrirtækinu eru veittar.

Allar fyrirspurnir er varða persónuverndarstefnu fyrirtækisins skulu berast skriflega á netfangið sara@sarafit.is.

4. Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga

4.1 Í hvaða tilgangi?

Sarafit ehf. safnar upplýsingum um viðskiptavini til þess að geta veitt sem besta þjónustu hverju sinni.

Í því felst að veita aðgang að vörum, þjónustu og upplýsingum, tryggja að sú þjónusta sem iðkendum er veitt sé sniðin að þeirra þörfum, gæta öryggis og miðla til þeirra upplýsingum í markaðslegum tilgangi.

Sarafit ehf. safnar eingöngu þeim upplýsingum sem eru nauðsynlegar til að veita þjónustu. Varðveisla þessi er að fullu í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd.

4.2 Hvaða persónuupplýsingar og með hvaða hætti?

Kaup á fjarþjálfun (greitt í gegnum Payday): Upplýsingar um nafn, kennitölu, símanúmer og netfang eru varðveittar ásamt upplýsingum um þá þjónustu sem keypt er.

Notendur Lora appsins (áskrift keypt í gegnum App Store eða Google Play): nafn og netfang sem notandi skráir við stofnun aðgangs. Greiðsluupplýsingar eru ekki sendar til eða varðveittar af Sarafit ehf. — þær eru eingöngu unnar af Apple eða Google.

Æfinga- og heilsutengdar upplýsingar: upplýsingar um markmið, æfingasögu, líkamsmælingar (t.d. þyngd), næringarskráningar og framvindumyndir sem notandi hleður sjálfur upp í appinu. Þessar upplýsingar eru viðkvæmar persónuupplýsingar og eru einungis notaðar til að veita þjónustuna (t.d. fylgjast með árangri, sérsníða æfingaprógram) og aldrei deildar með þriðja aðila í öðrum tilgangi án samþykkis.

Samskipti í appinu: Ef notandi og þjálfari eiga í samskiptum í gegnum spjallvirkni appsins eru þau samskipti vistuð til að tryggja samfellu í þjónustu.

Tilkynningar (push-tilkynningar): Til að senda tilkynningar í síma notanda er vistað tækjaauðkenni fyrir viðkomandi tæki.

Póstlisti: Við skráningu á póstlista er netfang varðveitt hjá þjónustuveitunni Kit. Notandi getur afskráð sig hvenær sem er.

5. Miðlun

5.1 Almennt

Sarafit ehf. miðlar ekki áfram persónuupplýsingum til þriðja aðila nema til þjónustuaðila sem aðstoða við að veita iðkanda þá vöru eða þjónustu sem gerður hefur verið samningur um.

Þær upplýsingar eru ekki notaðar í öðrum en upphaflegum tilgangi. Persónuupplýsingarnar eru ekki undir neinum kringumstæðum framseldar eða leigðar.

Payday: Við útgáfu reikninga fyrir fjarþjálfun er persónuupplýsingum (nafn, netfang, kennitala og greiðsluupplýsingar) deilt með Payday í þeim tilgangi að ganga frá greiðslu og bókhaldi.

Apple / Google: Vinnsla greiðslna fyrir áskrift að Lora appinu fer fram hjá Apple eða Google. Sarafit ehf. hefur ekki aðgang að greiðsluupplýsingum í þessum tilvikum.

Supabase: Gagnahýsing og gagnagrunnur fyrir Lora appið. Gögn eru hýst á öruggum netþjónum innan Evrópu (Frankfurt, Þýskalandi).

Resend: Notað til að senda tölvupóst frá kerfinu, svo sem staðfestingarpóst og tilkynningar.

Kit: Utanumhald um póstlista.

Meta (Facebook/Instagram) auglýsingar: Í markaðslegum tilgangi geta upplýsingar um samskipti og hegðun á samfélagsmiðlum verið nýttar í auglýsingakerfi Meta. Þetta felur ekki í sér miðlun viðkvæmra persónuupplýsinga (t.d. heilsufarsupplýsinga).

6. Öryggi

Öryggi og trúnaður persónuupplýsinga skiptir Sarafit ehf. miklu máli. Því eru gerðar ríkar kröfur um öryggi persónuupplýsinga og aðgangur að þeim er aðgangsstýrður og takmarkaður.

Persónuupplýsingar eru ekki geymdar lengur en nauðsynlegt er og er þeim eytt eftir að þeirra er ekki lengur þörf.

7. Réttur iðkanda

Líkt og lög kveða á um á iðkandi m.a. rétt á upplýsingum um hvort verið sé að afla persónuupplýsinga um hann og aðgang að þeim upplýsingum.

Notandi getur eytt aðgangi sínum og tilheyrandi gögnum beint í Lora appinu, undir Stillingar → Eyða aðgangi, auk þess að senda beiðni þess efnis á sara@sarafit.is. Þegar aðgangi er eytt eru persónuupplýsingar fjarlægðar, að undanskildum þeim gögnum sem lögum samkvæmt ber að varðveita (t.d. bókhaldsgögn vegna greiddra reikninga).

Telji iðkandi að meðferð persónuupplýsinga sé ekki í samræmi við lög getur hann sent Persónuvernd kvörtun.

8. Áskilnaður um breytingar

Sarafit ehf. áskilur sér rétt til þess að breyta persónuverndarstefnu sinni í samræmi við laga- og/eða reglugerðarbreytingar eða vegna þess hvernig fyrirtækið vinnur með persónuupplýsingar.

Taka þær breytingar gildi þegar uppfærð persónuverndarstefna hefur verið birt á heimasíðu Lora (lora.is).

Með því að halda áfram í greiðsluferli samþykkir kaupandi skilmála og persónuverndarstefnu Lora.