Skilmálar
Lora appið er rekið af Sarafit ehf., kt. 640124-0750
1. Almennt
Lora er í eigu Sarafit ehf., kt. 640124-0750. Skráning í áskrift eða kaup á tilbúnu æfingaprógrami, fjarþjálfun, næringarráðgjöf, hóp áskorunum, eða annarri þjónustu hjá Lora er háð eftirfarandi skilmálum.
Skilmálar þessir kveða á um réttindi og skyldur viðskiptavinar og eru kaupendur hvattir til að lesa þá vandlega yfir áður en greiðsla fer fram. Skilmálar gilda allan þann tíma sem áskrift eða þjónusta er virk.
Vinsamlegast athugið að sé kaupandi undir 18 ára aldri er þess krafist að forráðamenn hans samþykki skráningu. Með kaupum á hvers kyns þjónustu eða skráningu í áskrift samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála.
2. Skyldur Sarafit ehf.
Sarafit ehf. skuldbindur sig til að hafa aðgang að Lora appinu og fjarþjónustu virkan meðan áskrift eða þjónusta stendur. Ef um námskeið eða hóp áskorun er að ræða, þá fer hún aðeins fram ef nægur fjöldi þátttakenda skráir sig.
3. Skyldur iðkanda
Með kaupum á æfingarprógrami, fjarþjálfun, áskrift eða þátttöku í námskeiði staðfestir viðkomandi að honum sé óhætt að stunda líkamsrækt og að hann stundi æfingar á eigin ábyrgð.
Sarafit ehf. ber ekki ábyrgð á slysum eða meiðslum sem kunna að hljótast af æfingum eða ráðleggingum. Allar æfingar og næringar leiðbeiningar eru framkvæmdar á eigin ábyrgð. Iðkandi er hvattur til að hlusta á líkama sinn og hætta æfingu sem veldur óþægindum.
Ef iðkandi hefur sögu um meiðsl eða heilsufarsvandamál er hann hvattur til að ráðfæra sig við lækni áður en hann hefst handa. Sarafit ehf. ábyrgist ekki ákveðinn árangur (fitutap, vöðvauppbyggingu, þolaukningu o.s.frv.). Árangur er háður því hversu vel iðkandi fylgir æfingaplani, næringarráðgjöf og öðrum leiðbeiningum.
4. Áskriftarsamningur
4.1 Greiðslur, binding og uppsögn
Áskrift að fjarþjálfun er ótímabundin og innheimt mánaðarlega í gegnum Payday. Kaupandi getur sagt slíkri áskrift upp með 30 daga fyrirvara. Áskriftargjöld endurgreiðast ekki eftir að nýr áskriftarmánuður hefur hafist, sbr. þó rétt neytanda skv. lið 8 hér að neðan. Uppsagnir á fjarþjálfun skulu berast skriflega á sara@sarafit.is eða í gegnum spjallþráðinn í Lora appinu.
Áskrift að Lora appinu sjálfu (án fjarþjálfunar) er keypt og henni stjórnað í gegnum App Store (Apple) eða Google Play, eftir því hvaða stýrikerfi er notað. Slík áskrift endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega þar til henni er sagt upp. Uppsögn slíkrar áskriftar fer fram í stillingum viðkomandi verslunar (App Store eða Google Play), ekki hjá Sarafit ehf. beint, í samræmi við reglur Apple og Google. Leiðbeiningar um uppsögn er að finna í stillingum appsins.
4.2 Áskriftargjald
Eftirfarandi gjöld eiga við:
- 29.990 kr. á mánuði — Full fjarþjálfun: sérhannað æfingaprógram, næringarráðgjöf, persónuleg þjálfun og aðgangur að Lora appinu. Greitt í gegnum Payday.
- Frá 2.990 kr. á mánuði — Lora appið eitt og sér: aðgangur að forrituðum æfingaprógrömum og virkni appsins, án persónulegrar fjarþjálfunar. Keypt í gegnum App Store eða Google Play. Verð getur birst í annarri mynt eftir búsetulandi notanda, í samræmi við verðlagningu Apple eða Google fyrir það svæði.
Sarafit ehf. áskilur sér rétt til breytinga á verði. Verðbreytingar á áskrift sem keypt er í gegnum App Store eða Google Play taka gildi í samræmi við tilkynningareglur þeirra verslana.
5. Aðgangur að þjónustu og höfundaréttur
Aðgangur að Lora appinu er persónulegur og eingöngu ætlaður þeim sem greiðir fyrir þjónustuna. Allt efni í Lora appinu, á vefsíðu og í öðrum miðlum (æfingaplön, myndbönd, næringarefni, fræðsluefni o.fl.) er í eigu Sarafit ehf. og ætlað til einkanota viðskiptavinar. Óheimilt er að deila aðgangi, afrita, dreifa eða deila efni með öðrum nema með skriflegu samþykki.
6. Greiðslur
Fyrir fjarþjálfun eru öll gjöld í ISK og greiðslur fara fram í gegnum Payday. Viðskiptavinur fær reikning sendan í heimabanka og fær tölvupóst þegar reikningur hefur verið sendur.
Fyrir áskrift að Lora appinu í gegnum App Store eða Google Play fer greiðsla fram beint til Apple eða Google með þeirri greiðsluaðferð sem notandi hefur skráð hjá þeim. Sarafit ehf. hefur ekki aðgang að greiðslukorta- eða reikningsupplýsingum notenda í þessum tilvikum.
7. Skilaréttur og endurgreiðsla
Neytendur eiga almennt 14 daga rétt til að falla frá samningi um kaup á þjónustu sem gerður er í fjarsölu, sbr. lög um neytendasamninga nr. 16/2016. Með því að hefja notkun þjónustunnar strax (t.d. með aðgangi að fjarþjálfun eða Lora appinu) samþykkir kaupandi sérstaklega að hann glati rétti sínum til að falla frá samningnum eftir að þjónustan hefur verið að fullu veitt eða notkun hafin, í samræmi við 2. mgr. 14. gr. sömu laga.
Að þessu frátöldu fást æfingaprógröm og áskriftir ekki endurgreidd þegar þjónusta hefur hafist eða eftir að greiðsla hefur verið framkvæmd.
Áskriftir keyptar í gegnum App Store eða Google Play fara eftir endurgreiðslustefnu viðkomandi verslunar (Apple eða Google), og skal beina slíkum erindum þangað.
8. Force majeure
Á við um truflun á þjónustu Sarafit ehf. vegna ytri aðstæðna sem ekki eru á ábyrgð fyrirtækisins, þ.e. aðstæðna sem eru ófyrirséðar og ekki hægt að koma í veg fyrir (t.d. bilanir á netþjónum, rafmagnsleysi eða náttúruhamfarir).
Ekki er hægt að fá endurgreitt fyrir þegar hafið áskriftartímabil, en viðskiptavinur verður ekki krafinn um greiðslu fyrir næstu tímabil þar til ástandið er liðið hjá.
9. Lög og varnarþing
Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur verður honum vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Heimili og varnarþing Sarafit ehf. er í Reykjavík.
10. Áskilnaður um breytingar
Sarafit ehf. áskilur sér rétt til að breyta skilmálum sínum í samræmi við breytingar á lögum, reglum eða starfsemi. Breytingar taka gildi þegar þær hafa verið birtar á heimasíðu Lora (lora.is).